Greinar|

Nk. miðvikudag býðst mér að fara í beina útsendingu á Stöð 2 með forsvarsmönnum annarra flokka – ef XL hefur þá náð tilskildum fjölda meðmæla. Þegar þetta er ritað, á laugardagsmorgni, vantar aðeins nokkur hundruð meðmæli. Náist þau fáum við tækifæri til að fara og hrista upp í íslenskum stjórnmálum. Á því er engin vanþörf. Takist það ekki munum við þurfa að horfa upp á endurtekið efni: Kunnugleg andlit atvinnustjórnmálamanna (í bland við fræg andlit) án pólitísks erindis, sem brosa fallega og segjast bera umhyggju fyrir öllu sem hreyfist (nema helst sjálfstæðum atvinnurekendum og vinnandi fólki sem heldur uppi ríkisbákninu) en einbeita sér svo í sameiningu að því eftir kosningar að drekkja okkur í fleiri lagareglum, hærri vöxtum og hærri sköttum.

Eftir aldalanga erlenda stjórn eru Íslendingar kannski vanari því en aðrar þjóðir að kyssa vöndinn. Aðrir myndu mögulega reyna að skýra hegðun kjósenda með vísan til einhvers konar Stokkhólms-heilkennis. Hvað sem því líður er löngu tímabært að Íslendingar fari að sjá í gegnum þessa gervi-umhyggju og fölsk loforð flokkanna (um að „gera betur“ og „breyta stjórnmálunum“), enda gera þessar valdastofnanir ekki annað en að sölsa undir sig meiri völd og meira fé úr vösum almennings.

Ef Íslendingar ætla að halda áfram að kjósa „vók“ stjórnmálamenn mun það framkalla áframhaldandi niðurbrot á innviðum Íslands, þar sem ríkisvaldið heldur áfram að tútna út á kostnað almenns, borgaralegs frelsis. Lýðræðisflokkurinn er stofnaður til að berjast gegn þessu á grunni klassískrar frjálshyggju: Vernda ber frelsi einstaklingsins með rökhugsun sem byggir á staðreyndum og mannlegum gildum sem sannað hafa ágæti sitt í tímans rás.

Ég hvet alla til að mæla með XL svo að unnt verði að tefla fram alvöru valkosti, til að unnt verði að beina kastljósi að samgróningum íslenskra stjórnmálaflokka, til að unnt verði að krefjast þess – innan frá á Alþingi – að stjórnmálamenn starfi í þágu lands og þjóðar en ekki í þágu erlendra hagsmuna.

Ef ekkert breytist, ef sömu flokkar (og sama fólk) verður kosið inn á Alþingi mun þingið halda áfram að innleiða hér erlendar reglur, án umræðu, án ágreinings. Með því móti breytist Alþingi úr löggjafarþingi í afgreiðslustofnun, þar sem hlýðnir þingmenn ýta á takka eins og þeim er sagt og kjósendur horfa hjálparvana á völdin – og svo auðinn – flytjast úr landi.

Það er orðið tímabært að þessari öfugþróun sé andmælt á skýrum, frjálslyndum, borgaralegum og lýðræðislegum forsendum. Til þess var Lýðræðisflokkurinn stofnaður fyrir tæplega einum mánuði síðan. Við höfum enn tíma til stefnu.

Hjálpaðu okkur að skapa sögulegan viðburð með því að mæla með flokknum og hleypa ferskum, óspilltum vindum inn. Það þarf að lofta út á Alþingi.

Höfundur er Arnar Þór Jónsson, einn af stofnendum Lýðræðisflokksins.

Comments are closed.

Loka leitarglugga