Greinar|

Stofnun Lýðræðisflokksins er nauðsynlegt andsvar við þeim doða sem lagst hefur yfir íslensk stjórnmál.

Í landi þar sem stór hluti almennings þorir ekki að tjá skoðanir sínar halda margir að framtíðin verði best tryggð með því að þegja, brosa og hlýða yfirvaldinu. Gömlu stjórnmálaflokkarnir eru myndbirting þessa vandamáls og þjóna hagsmunum flokkseigenda fremur en kjósenda. Ríkisreknir fjölmiðlar og ríkisreknir stjórnmálaflokkar sameinast um að þjóna kerfinu sem til er orðið. Það útskýrir sterk viðbrögð við Lýðræðisflokknum sem lofar að þjóna almenningi og efla beint lýðræði. Í umhverfi þar sem stefnumál flokka sjást ekki í framkvæmd bregðast flokkarnir hagsmunum kjósenda sinna daglega. Við slíkar aðstæður er brýn nauðsyn á pólitískri endurnýjun.

Á þremur sólarhringum, síðan tilkynnt var um stofnun Lýðræðisflokksins hafa komið fram eftirfarandi áherslumál flokksins:

Á Íslandi búi frjáls þjóð í frjálsu landi: Staðinn verði traustur vörður um frelsi fólks til orðs og athafna. Í stað áframhaldandi stofnanavæðingar stjórnmálaflokka fái almenningur að endurheimta áhrif sín og sjálfsvirðingu með þátttöku í beinu lýðræði um mikilvægustu mál.
Að innviðir íslensks samfélags, sem grotnað hafa niður á síðustu árum, verði treystir að nýju.
Miklu lægri skattar, tollar og opinber gjöld: Þetta verður ekki gert nema með því að skrúfa fyrir stjórnlausan leka úr ríkiskassanum, m.a. í loftslagsmál, hælisleitendamál og daglega útþenslu ríkisins. Ríkið hætti að vasast í málum sem ekki falla undir grundvallarhlutverk þess, en eftirláti einstaklingum og fyrirtækjum að stýra sínum eigin málum.
Fjölmiðlar: Samkvæmt fylgiriti með frumvarpi til fjárlaga 2025 eiga tæplega 6,5 milljarðar af almannafé að renna til RÚV á því ári. Þetta er tímaskekkja. Þær aðstæður sem réttlættu stofnun Ríkisútvarps á sínum tíma eiga ekki lengur við nú á dögum. Eigi nefskattur að standa áfram ber að veita skattgreiðendum frjálst val um hvaða fjölmiðill fær útvarpsgjaldið sem hver og einn greiðir. RÚV ohf. á að selja eða leggja niður.
Húsnæðismál: Sveitarfélögum verði gert skylt að tryggja nægilegt lóðaframboð og byggingareglugerð verði einfölduð.
Lækkun vaxta og verðbólgu: Áhrif 80.000 útlendinga sem dveljast á Íslandi og ríflega tvær milljónir ferðamanna árlega setja gríðarlegt álag á innviði, ekki síst á húsnæðismarkað. Peningastefna yfirvalda stefni að nýju marki, þ.e. að bæta hag almennings fremur en að tryggja hagsmuni fjármagnseigenda.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi um það sem þarf að gera og verður gert, sbr. stefnuyfirlýsingu Lýðræðisflokksins og 12 loforð til kjósenda sem birt verða á næstunni.

Höfundar eru stofnendur Lýðræðisflokksins.
Arnar Þór Jónsson
Kári Allansson
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Loka leitarglugga