Undirritaður og formaður Lýðræðisflokksins, Arnar Þór Jónsson, rituðu grein sem birtist á Vísi 27. október síðastliðinn. Bar greinin yfirskriftina Róttækar og tafarlausar umbætur. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér stefnu Lýðræðisflokksins í hælisleitendamálum er bent á að lesa greinina. Þrátt fyrir að höfundar hennar hafi gert sitt besta til að útskýra vandann sem fylgir frjálsri för á EES- og Schengen-svæðunum, virðist það ekki hafa skilað sér til Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins, hvað þá annarra flokka.
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kynnti á dögunum nýja stefnu stjórnvalda um málefni landamæra. Þá ritaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins grein í Morgunblaðið 20. nóvember síðastliðinn þar sem hann útlistaði stefnu sína varðandi hælisleitendakerfið.
Hvorki Guðrún né Sigmundur virðast átta sig á því í fyrsta lagi, að eina leiðin til að stöðva straum hælisleitenda er að leggja hæliskerfið alveg niður, en taka eingöngu á móti kvótaflóttamönnum í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna. Í öðru lagi virðast þau ekki átta sig á því að eina leiðin til að uppræta starfsemi erlendra glæpasamtaka á Íslandi er að taka upp vegabréfsáritanir til landsins fyrir alla útlendinga. Það hefur einnig þann kost að veita yfirsýn yfir fjölda ferðamanna og auðveldara verður að leggja komugjald á þá. Aðeins með vegabréfsáritunum verður framkvæmanlegt að vísa mönnum frá landinu áður en þeir eru komnir inn í það.
Allt kapp verður að leggja á að glæpamenn eða fólk sem ekki getur séð fyrir sér sjálft komist ekki inn í landið. Annars verður margfalt erfiðara og tímafrekara að koma þeim úr landinu m.a. vegna tengingar laga um útlendinga við flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, Dyflinnar-reglugerðina og Schengen-samninginn. Reglur sem hvorki Guðrún né Sigmundur ætla að víkja til hliðar.
Tillögur Lýðræðisflokksins fela raunverulega í sér fulla stjórn á landamærunum, en tillögur Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins duga skammt.
Eyja í Norður-Atlantshafi á að geta varið landamæri sín gagnvart hinu norræna ástandi sem lögreglumenn hafa nýlega varað við. Ef menn vilja breytingar, þá verða þeir að kjósa breytingar.
Gerum Ísland gott aftur!
Höfundur Kári Allansson, er í fyrsta sæti hjá Lýðræðisflokknum í Reykjavík suður og er fyrrverandi lögfræðingur hjá Útlendingastofnun.