Greinar|

Afrakstur 7 ára ríkisstjórnarsamstarfs þessara flokka er skelfilegur. Nokkur dæmi:

● Skortur á íbúðahúsnæði
● Vextir íbúðalána himinháir.
● 60 þúsund heimili eiga varla fyrir afborgunum á húsnæði sínu eða leigugjöldum.
● Tugum milljarða eytt í hælisleitendur og landmæri Ísland opin nánast hverjum sem er.
● Eldra fólk sem ekki er í vinnu eða fær ekki vinnu býr við afar þröngan kost og ekkert fjárhagsöryggi.
● Í samvinnu við ríkisstjórnina en enn þrengt að flugvellinum í Vatnsmýri og öryggi hans.
● Ríkisstjórnin hefur ekkert gert í því að laga samgöngur á helstu umferðaræðum höfuðborgarinnar, þó svo hættulegt umferðaröngþveiti skapist þar daglega á stórum gatnamótum.
● Íslenskukunnáttu ungmenna hrakar.
● Enn er bráðamóttaka Landsspítalans alla daga yfirfull og hættuástand ávallt yfirvofandi.
● Í hverju viku kaupa erlendir aðilar upp bújarðir á Íslandi á nokkurra skilyrða.
● Ráðist er að atvinnugreinum og gerð tilraun til að banna þær á forsendum tilfinningasemi og uppspuna meintra náttúruverndarsinna um dýraníð.
● Milljörðum er eytt í málefni loftslagsvár af mannavöldum þó engar vísindalegar sannanir liggi að baki.
● Dælt er inn í íslenskt réttarkerfi lögum og reglugerðum frá Evrópusambandinu sem íþyngja atvinnugreinum og valda gríðarlegum kostnaði við óþarfa eftirlit og truflun á starfsemi fyrirtækja.


Áfram er sótt að sjávarbyggðum og smábátaflotanum með ofstjórn við þorskveiðar og grásleppuveiðar.
Og svo má nefna nokkur áform sem runnu út í sandinn eins og byggingu 700 hjúkrunarrýma, þjóðarhöll í Laugadal, meðferðarheimili fyrir unglinga og björgunarmiðstöð.

Höfundur er Kjartan Eggertsson, tónlistarkennari og er í 5. sæti á lista Lýðræðisflokksins í Reykjavík suður fyrir Alþingiskosningar 2024.

Comments are closed.

Loka leitarglugga